Fínt veður í dag, hæg norðanátt og sólskin. Í nótt fraus í fyrsta skiptið á þessu hausti.
Við tókum upp bláar kartöflur úr kerjum 23 og 22, fengum 4,2 kg úr öðru og 6,7 úr hinu, líklega vorum við búin að taka 1eða 2 grös úr því. Ég valdi 200 fallegar rauðar kartöflur af okkar eigin útsæði, okkur finnst þær rauðari og fallegri en þær sem við keyptum í vor. Nú er komið útsæði í frauðplastkassa, búið að þurrka og ganga frá því. Það er ein og ein blá kartafla með ljótu hýði, líkist kláða, svo það yrki verður ekki sett í akurinn næst, aðeins rauðar og sauðlauksdalur eins og í ár.
Við tókum líka upp eina körfu af hnúðkáli, þar er lítið að gerast. Klipptum meira af örsmáum brokkólíhnausum og höfðum í kvöldmatinn. Það sem tekið var upp um daginn snöggsauð ég og frysti í litlum pokum, má nota í súpu og pottrétti. Nokkrar gulrætur, nú eru þær stórar og flottar.
Svo tókum við inn einn bala af mold og 2 fötur af sveppamassa, næsta mál á dagskrá er að potta hvítlaukinn.
No comments:
Post a Comment