Sunday, October 2, 2016

Sunnudagur 2. október 2016

Hiti: 8°C, vindur S 10-12 m og upp í 30 m í hviðum.  Við vorum í Hafnargerði og Halldór kláraði að þjappa mölina inni í húsinu og í kringum það. Þetta er mjög fínt núna, næstum eins slétt og malbik.  Ég tók upp það sem eftir var af brokkolí, það var ekki mikið, þetta gekk ekki eins vel í sumar eins og í fyrra. Tók líka upp hnúðkál, nú er það ekki eins gott, svolítið byrjað að tréna. Tók líka gulrætur, þær eru enn mjög góðar og talsvert er eftir af þeim.
Halldór að fara síðustu hringina með þjöppuna. 


Nú er orðið haustlegt um að litast.


Gullrifsið er teinrétt og með ótrúlega fallega haustliti.
Gullrifs og blátoppur.


Af holtinu, með stækkkun.
Af holtinu, með stækkun og aðeins úr fókus.

Reynir og ösp í Norðurstykkinu.
Blæösp nr. 1
Ég var í Svedala og Lundi í síðustu viku og safnaði fræi af hrossakastaníu, kastaníu og hlyni. Hlynurinn er líklegast purpurahlynur, móðurplantan afar falleg með mjög stórum laufblöðum (Frá Lundi). Hrossakastanían úr dýragarðinum í Kaupmannahöfn og úr Svedala, kastaníurnar úr Svedala. Búin að sá þessum hnetum í 6 stórar fötur, þær verða úti fyrst um sinn.
25. júní 2018 - Flottar hrossakastaníur og hlynir, en kastaníur spíruðu ekki.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive