Wednesday, March 29, 2017

Miðvikudagur 29. mars 2017

Hlýtt veður í dag, logn og sólskin að mestu, 7°C.
Í gær fórum við í leiðangur að finna græðlingaefni, en þá brá svo við að búið er að klippa bæði viðjuna og brekkuvíðinn við Þórðargötu, þar sem við höfum aðallega tekið græðlinga. Ég fyllti samt skottið af afklippum af viðjunni, þetta eru margir góðir græðlingar, en það verður talsverð vinna að raða þeim og klippa til. Ég fann svo óklipptan víði, hreggstaðavíði (samkv. Sædísi), vestan við íþróttavöllinn. Þar tókum við svo vel yfir 500 stóra  sprota. Í dag klipptum við niður 200 græðlinga og stungum niður í bakkann við lækinn, austan við aspirnar. Settum þá frekar þétt, í nærri tvöfalda röð. Með nýja stungutækinu tók þetta ekki nema 1/2 klukkustund.
  Loks fór ég að Borg og klippti loðvíðigræðlinga í innkaupapoka, það stendur til að setja megnið af þeim í fp40 bakka og gróðursetja í melinn seinna í sumar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive