Sunday, March 4, 2018

Sunnudagur 4. mars 2018

Kalt í veðri, NA 9-12 m, sólskin.
Eftir mjög risjótt veður og leiðindi um tíma komu nokkrir góðir dagar, svo aftur frost og stillur, en nú er jörð nánast auð.
Allt er með kyrrum kjörum í Hafnargerði, nokkrir laukar (hvítlaukur og ) hafa skotið upp kollinum í þíðunni, en allt annað er kyrrt, líka inni í gróðurhúsinu.
Fékk í dag sendingu frá trjáklúbbnum:

Abies amabilis
Betula utilis Himalaya birki
Nothofagus antarctica
Schisandra chinensis
Viburnum cassinoides v. trilobum
Sjá nánar hér: Fræ pöntun 2018.xlsx
Leiðbeiningar frá Vésteini um meðhöndlun fræja hér.

Við skruppum í Hafnargerði. Í gær voru þar álftahjón á ferð, sáum þau ekki í dag. Settum hvítlauk frá Costco í nokkra potta, athuga hvað þeir gera. Það var heldur kuldalegt um að litast.
"Hlýlega" hornið á bak við gróðurhúsið, hér á að taka til hendinni þegar vorar. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive