Monday, November 5, 2018

Mánudagur 5. nóvember 2018

Það hefur verið nær stanslaust frost undanfarið, í nótt féll fyrsti snjórinn, en spáð er hlýnandi á morgun. Óveðrið sem spáð var kom svikalaust, vindur fór í nálægt 40m, en við sáum ekkert sem fokið hafði hjá okkur.
Við tókum upp slatta af gulrótum um síðustu helgi, og suðum niður. Hluti var brytjaður og er tilbúinn í ofnrétti, annar hluti maukaður og er tilbúinn í súpur. Gerði í gær súpu með gulrótum, engifer og epli, mér fannst hú góð og öðruvísi.



Haustmyndir. Grenilundurinn á holtinu og greni sem er að vaxa upp í ruðningnum, í skjóli við gróðurhúsið.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive