Hjá Sædísi blöndum við sandi í moldina og fyllum fp40. Tilbúnir bakkar eru settir á úðunarborð með plastdúk yfir, úðað annað slagið.
Rótarhormón notað á allt, nema skógarkvistinn úr Hafnaragerði.
Þetta eru tegundirnar sem teknar voru fyrsta daginn (23. júlí). Japanskvistur með gulu laufi, 'Little princess' og 'Hólmfríður', af þessum fengust góðir græðlingar af græðlingum frá því í fyrra. Þeir eru nýlega komnir út úr gróðurhúsinu og eru í fínum vexti. Tók 2-3 græðlinga af hverri grein, ca handarbreidd, 2-5 brum og 1-3 lauf. Endagræðlingar ef það passaði við stærðina.
Skógarkvistur var erfiðari, við tókum græðlinga af gömlum plöntum og ársvöxtur var mjög lítill. Náði 32 græðlingum. Tók síðan heilan bakka af mínum plöntum í Hafnargerði, ýmist enda eða miðjugræðlinga. Þeir voru í besta falli sæmilegir. Setti þá í mold frá Sædísi, án rótarhormóna. Loks tveir bakkar af skotamuru.
2019 var ekki eins auðvelt að ná græðlingum, nema af 'Hólmfríði', en ég klippti hana niður árið á undan, ársvöxtur var þess vegna betri en venjulega. Þeir græðlingar komu sem sagt úr Hafnargerði. 'Eiríkur rauði' var í reit hjá Sædísi og góður vöxtur, það var auðvelt að ná af honum græðlingum.
Þriðjudagur 28. júlí (með Ástu Möller)
geislasópurrunnamura (erfitt að ná góðum græðlingum, en plöntur í góðum vexti)sýrenur - blandað efniheggurmiðvikudagur 29. júlírunnamura (hvít, bleik og orange)hlíðaramalllogalaufbirkikvistur úr Skalló. Sædí klippti græðlingana, hún hefur þá langa og með miklu laufi. Sumir með greinum. Sama á við um:Japanskvist - gul blöð
30. júlí
geislasópur - 6 bakkar. Flestir venjulegir endagræðlingar, litlir brúskar. Einn bakki með miðjugræðlingum og farið í eldri sprota, einn bakka með litlum brúskum af nýjum plöntum.
Í Hafnargerði eru græðlingarnir settir í potta, ca 10 í hvern pott. Pottarnir settir í bakka og akryldúkur yfir, úðað annað slagið. Mold og vikur blandað saman, ekkert rótarhormón.
Það sem komið er:
Sýrena (rauð) 12. júlí 1fp15 24 júlí 2 pottarsýrena 'Hallveig'SunnukvisturGlæsitoppurBlá plóma
26. júlí bættist við:
birkikvisturblóðrifs - bleiktgarðakvistill, rauður og grænn
27. júlí
mánakvistur
28. júlí
geislasópur - í hreinan vikur í stofugluggannsýrena 'Júlía' - í hreinan vikur
30. júlí
logalauf - 1 fp40

No comments:
Post a Comment