Thursday, December 31, 2020

Fimmtudagur 31. desember, gamlársdagur.

 Þá er árið senn á enda. Færslur hafa verið fáar í ár, við höfum samt verið meira í Hafnargerði en oft áður, það er aðallega vegna hænsnanna. Þær verpa enn, 1-2 egg koma á dag, svo við förum oft að vitja um þær.  Það gerðist mikið í gróðrinum í sumar og við gróðursettum talsvert, en minna fór af græðlingum í vor vegna veikinda Halldórs. 

Nokkrar myndir teknar 29. og 30 des, þá loks var snjór og falleg birta. 
















Sitkaölur við gáminn, í lok ágúst.

Hér sést að körfuvíðir og fleira norðan við rifisið hefur heldur betur tekið við sér. 
 Jarðarberin voru heldur slöpp lengi fram eftir sumri, en  rifs og sólber gáfu fína uppskeru, líka blárifsið. 

Valdi og Emil komu og skelltu upp palli við gáminn. 

Kroppa lá á eggjum, hún kom upp þremur hænuungum. Þeir komu úr eggi í byrjun júlí og byrjuðu að verpa í byrjun desember. 




No comments:

Post a Comment

Blog Archive