Monday, August 15, 2022

Sunnudagur 14. ágúst 2022 - Sumarferð trjáklúbbsins

href="https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEj2cQzgbbEP3jsDJnU9Se_DA16EIWcBEQBfTuY4Qypp7fySAjSFVh2rM269FDd5OeVUZbc7wFXnB-tlth2pPudlcVMxlQ4J7oODWMVLtFm67at-Ed4AlONOiBrrUrQ1ivxzlL8cVFV47iXzn6Rol_oezFociCuPDJeiLu7goXBuh6cbRXcNrIwG3yZp/s4080/PXL_20220814_142635229.jpg" style="display: block; padding: 1em 0; text-align: center; ">
Í gær, sunnudag fór ég í sumarferð Trjáklúbbsins um Suðurlandið. Ég lagði af stað að heiman rétt rúmlega 7 og var komin heim aftur rúmlega 11 um kvöldið. Frábær ferð í alla staði og fínasta veður, ekki mjög hlýtt en fremur sólríkt. Hópurinn hittist kl. 8.30 við Árbæjarsafn endaði þar aftur. Ég fékk far með Óla og Sólveigu. Fyrsti viðkomustaður var Eystra Seljaland. Skoðuðum hella þar og gengum svo niður á sanda og sáum skógrækt á söndunum, líka hampræktun. Næst var farið í Deild til Sveins Þorgrímssonar og ævintýralandið hans skoðað. Samdi við hann um að koma aftur síðsumars og tína ber og fræ. Heimsóttum Ragnheiði Björnsdóttur að Apavatni og loks var farið til Sigurðar Guðmundssonar að Syðri Reykjum. Skoðuðum þar margt fallegt, ekki síst var gaman að sjá hvernig þau hjónin nota fjölæringa sem undirgróður í trjárækt.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive