Allhvasst, NA14, 10°C.
Tók jarðarberin í gegn, klippti ofan af þeim og hreinsaði óviðkomandi plöntur, gras, fífla, skriðsóley, reynitré og rifs. Þrestir láta til sín taka við sáningar. Sædis tók við afleggjurum og ég fæ hjá henni nýjar plöntur næsta vor.
Allar aspir eru orðnar svartar eftir rok í síðustu viku, þetta er stysta sumar sem ég man eftir í Hafnargerði. En tré sem eru í skjóli inni á akrinum eru enn laufguð, varla að eikur séu farnar að sýna haustliti.
Í gróðurhúsinu er allt í góðum gír, plómutréð vex og vex, en það vill ekkert kannast við bláar plómur. Það voru nokkrar sem náðu fullum þroska og þær eru fagurgular.
![]() |
| Gul plóma. Þær eru ljúffengar. |
![]() |
| Elriskógur er að myndast vestan við limgerðið. |


No comments:
Post a Comment