Monday, April 22, 2024

Mánudagur 22. apríl 2024

Loksins komið vorveður; sólskin, logn og 10°C. Gat ekki staðist mátið og skrapp í sveitina. Í gróðurhúsinu og úti er allt nokkuð rólegt. Helst að birkið sé að mynda bústin brum. Líka plómutréð, en það er allavega vika -10 dagar í að blóm fari að sýna sig. Vökvaði vel, og nú verð ég róleg, verð burtu í viku. 

Enn er mikið frost í jörðu og heldur ekki tímabært að klippa græðlinga. Vegurinn ömurlegur. Dý á nokkrum stöðum enda rigndi í gær á frosna jörð. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive