Friday, June 20, 2025

Laugardagur 21. júní 2025

 Heimsókn til Íslands 10. - 29. júní 2025. 

Nokkrar ferðir í Hafnargerði, aðallega til að taka til. Í gróðurhúsinu er stóra plómutréð dautt af þurrki. Ein hosta barðist fyrir lífi sínu. Setti hana í pott og nú er hún hjá Berglindi í Arnarási. Fór líka með einn glæsitopp og einn graslauk í pottum. 

Anders kom í heimsókn og fékk nokkrar plöntur: sýrenur, o.fl. 

Heimsótti Leirubakka, nú er Fríða mjög áhugasöm. Fékk einhverjar plöntur.

Garðakvistill og sýrena

Sisco kælir sig í læknum.

Búið að fjarlægja dauðar plöntur.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive