Sunday, August 2, 2026

1. ágúst 2026

 Búið að setja Hafnargerði á sölu. Þórarinn Óðinsson tók það að sér. Hann birti nokkrar drónamyndir á netinu. 

Fyrsta skoðun sem ég frétti af var strax eftir að auglýsingin var tilbúin. 






Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Hafnargerði, Hvalfjarðarsveit, 301 Akranes.
Um er að ræða 30 ha eignarland úr jörðinni Höfn í Hvalfjarðarsveit. Góð staðsetning stutt sunnan við Borgarnes.

Á landinu er 40 feta gámur nýttur sem kaffistofa með pall fyrir framan, samliggjandi 20 feta gámur sem er nýttur sem verkfærageymsla. Einnig er gróðurhús við pall. Til viðbótar eru 3 samliggjandi íbúðargámar í uppgerð spölkorn fyrir neðan. Byggingar eru 
Inntak fyrir rafmang frágengið og tengt en vatn hefur verið leitt úr læk til að vökva gróður.
Nokkur skógrækt hefur verið á jörðinni í um áratug og er komin vísir að myndarlegri trárækt.

Hér er um áhugaverða eign að ræða sem gefur ýmsa möguleika vegna nálægðar við Borgarnes og Reykjavík. Þá er svæðið kjörið til útivistar enda tilheyrir sjávarkamburinn eigninni og er útsýnið stórbrotið.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 865-0350 og 497-0040, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

TegundJörð/Lóð
Verð40.000.000 ISK
Áhvílandi0 ISK
Fasteignamat15.650.000 ISK
Brunabótamat0 ISK
Stærð0 fermetrar
Herbergi0
Svefnherbergi0
Baðherbergi0
Byggingarár0
LyftaNei
BílskúrNei
GarðurNei
Skráð07.07.2026









No comments:

Post a Comment

Blog Archive