Frost um -6°C en logn og jafnfallinn snjór. Í Hafnargerði hafði þó fokið svolítið í skafla. Það hefur verið vetur með snjó, frosti og oft vondu veðri, alveg frá því í byrjun desember. Við höfum eiginlega ekki farið niðureftir síðan seint í nóvember. En í dag var sem sagt frábært veður , en kalt.
Trjáræktin lítur vel út, og flestar skjólgrindur eru á sínum stað. Ég skoðaði kartöflurnar, en þær litu mjög illa út, það var allt of mikill raki í kössunum og mikið af kartöflunum voru skemmdar. Ég sorteraði þær ónýtu frá og tók það skársta af öllum sortunum og fór með þær heim, vonandi tekst mér að halda stofnunum við. Einkum er mér sárt um Sauðlauksdalsyrkið.
No comments:
Post a Comment