Skrapp á Mógilsá í dag og umpottaði svolítið, aðallega þini. Merkingar að mestu týndar, en þó fann ég merkimiða á Abies procera, þær eru amk 12 og líklega eru 6 í viðbót sama tegund = 18. Þá eru 5 stykki sem eru ljósari og grófari (+6 sem eru mjög lík) og 3 sem eru bláleitar, líkar blágreni. 1 stykki er af Picea purgens, var glauca. Það er með fallegan bláan lit.
2 stór lerki pottaði ég upp og 7 rósir, græðlingar af Kamtschaka rósum frá því í fyrrasumar. Þá tók ég 2 Eleaganus commutata og pottaði upp með smitaðri mold sem var útbýtt í fræfundi trjáklúbbsins á fimmtudaginn var.
No comments:
Post a Comment