A10 og 8°C. Sólskin stóran hluta dagsins. Við fórum stutta stund í Hafnargerði og sáðum gulrótum í fyrsta kerið. Það var smávægilegt frost í moldinni, en hún er létt og fín, skíturinn frá því í fyrra orðinn að mjúkri mold.
Í fyrra sáðum við í fyrsta kerið 6. apríl, en í hin ekki fyrr en 6. maí. Það var alveg í seinasta lagi.
No comments:
Post a Comment