13°C, A11 (24 í hviðum) sólarlítið.
Fórum í Hafnargerði og undirbjuggum 4 ker til að sá gulrótum í. Í kerjunum er mold sem kartöflur voru ræktaðar í fyrra. Vegna vinds var hætt við að sá fræinu, en það verður gert fljótlega. Í kerjunum þar sem hvítlaukur var í fyrra voru nokkrir að skjóta upp kollinum. Þeim var safnað saman og þeir settir í ker 14, en þar var mest af þeim. Græðlingar af myrtuvíði fóru niðureftir, þeir eru í frauðplastkassa.
Síðdegis fór ég til Sædísar og sáði hnúðkáli í 2 bakka, 2/3 úr bréfi (2.500). Rauðrófurnar frá síðustu viku spíra ágætlega.
No comments:
Post a Comment