Monday, July 27, 2015

Mánudagur 27. júlí 2015

Ennþá bongóblíða, 15°C og næstum því logn. Sama veður í gær. Þá kom Rakel í heimsókn með fjölskylduna og þau dvöldu lengi dags. Við fórum í gönguferð um svæðið og svo niður í fjöru. (Náði í þang sem sagt er að aspasinn kunni vel að meta.)
 Við tókum upp kartöflur úr kerjum, sýnishorn úr öllum. Excellency er komið lang, lengst, svo kemur mandla fast á eftir, þá Sauðlauksdalur. Rauðu og bláu yrkin eru mun seinni. En kartöflurnar voru afar ljúffengar, snæddar með lambalæri og sumir fengu sér kartöflur með smjöri og graslauk. Við tókum upp einn hvítlauk, hann var risastór og flottur og eftir því góður. Þá kíktum við á hnúðkálið og vorum mjög undrandi, því talsvert af því er orðið um og yfir 400 gr. Við tókum upp í dag rúm 20 kg og sendum í Frú Laugu. Ef tíðin helst svona góð eitthvað áfram verður mikið að gerast á næstunni.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive