Sólskin, 16°C, NA vindur síðdegis.
Við fórum í Belgsholt í morgun og sóttum greni og birki frá Rootopia. Þetta eru mjög fallegar plöntur og stórar, þær eiga að vera sérstaklega vel smitaðar með rótarsveppum sem Sigurbjörn Einarsson hefur verið að þróa.
Ég fór svo til Reykjavíkur og hafði meðferðis bæði rabbarbara og graslauk sem fór til Frú Laugu. Það er eina salan í ár, reyndar fór ég með 8 geislasópa til Sædísar, en hún seldi þá á 4.500 kr. stykkið og hefði getað selt enn meira. Í staðinn fékk ég 48 jarðarberjaplöntur og 1 bakka af sitkagreni.
No comments:
Post a Comment