Við vorum í góða stund í Hafnargerði í dag, í gær var úrkoman 35 mm. Samt var ekki hægt að segja að allt væri á floti. Við tókum upp 40 kg af hnúðkáli fyrir Frú Laugu, 10 stykki fyrir Ljómalind og 6 búnt af gulrótum. Við erum enn að taka upp úr kerjunum, næstum búin í fyrstu 2, erum að grisja úr hinum og gulræturnar stækka með degi hverjum. Nú er komið nóg af hnúðkáli til þess að gefa smakk og við sendum slatta af því bæði í Frú Laugu og í Ljómalind. Við tókum líka upp tæp 7 kg af kartöflum fyrir MB og helling af spergilkáli fyrir okkur og Brynja á að fá slatta. Gulræturnar úti á akri vantar ekki mikið upp á að vera tilbúnar og nokkur hnúðkál úr sáningunni eru bara tilbúin. Sums staðar höfum við sáð of þétt, þar eru þau minni. Gulræturnar á kafi í arfa, nú vantar góðan og þurran dag til að reita hann.
Smá sýnishorn af uppskerunni, við getum aldrei annað eftirspurn, en það er bara gaman.
Setti þessar tvær á facebook í dag með textanum "Uppskeruvinna í kulda og trekki. Þetta vakti mikla lukku, yfir 50 like.Þegar uppskeran var búin og við búin að taka til pantanir fyrir MB, fyrir Ljómalind, fyrir Brynju og fyrir okkur sjálf tókum við hvítlaukinn sem hefur legið til þerris inni í gámi og gengum frá honum. Grösin voru klippt af og ræturnar fjarlægðar. Laukarnir settir í poka og þeir fóru inn í bílskúr. Thermidrone laukarnir eru greinilega fallegri en þessir norsku. Næst er að velja rif í útsæði, til stendur að koma þeim fyrr niður en síðasta ár.
Dagurinn endaði á því að ég tók jarðarberin ´Glíma´og klippti ofan af þeim. Síðustu jarðarberin voru í eftirmat. Svo náði ég um 20 græðlingum, þeir voru nú frekar litlir sumir, en ég set þá niður næsta vor ef þeir lifa.

No comments:
Post a Comment