Allan síðasta mánuð hafa haustverkin falist í því að taka upp grænmeti og pakka. Við höfum sent ca. 40 kg af hnúðkáli á viku í Frú Laugu og 2 sendingar af brokkólí, sem vex sem alrei fyrr. Svo höfum við haft það í matinn þangað til við gátum ekki meir, og frystum líka slatta. Brynja og stelpurnar hafa líka fengið helling, Hekla og Katla kunna að meta þetta sælgæti. Kartöflurnar fóru allar í mötuneyti MB og gulrætur, 4-5 kg á viku fara í Ljómalind (8-10 pokar).
Í síðustu viku sáði ég reyniberjum í 2 bakka. Þau voru af afar fallegu tré sem stendur á bílastæðinu við Bifröst. Ég sáði líka fræi af purpurahlyn frá Borgarbraut i 1/2 bakka og berjum af Bergreyni á móti.
En í dag gróðursetti ég 40 víðiplöntur sem voru afgangs í bökkum, 26 jörvavíði 'Katla' og 16 gulvíði. Halldór klippti þá græðlinga af fallegri plöntu í okkar landi. Ég setti þetta upp á eyðimörkina. Þar er brekkuvíðirinn loksins farinn að vaxa, hann fór þangað árið 2008 eða 2009 og er nú í hnéhæð. Við settum helling af birki þarna í fyrra, en fáar plöntur virðast hafa lifað. Við settum nokkra brúska af lúpínu þar sem enginn gróður er, og nú eru komnar fjölmargar smáplöntur í kring. Þar setti ég þessar víðiplöntur og vona að sambýlið verði þeim til lífs.
Halldór setti plexigler á tvö karmalok, og þau fóru yfir jarðarberin úti á akri. Við festum þau tryggilega, en þorðum samt ekki annað en að setja líka net yfir. Annars hefur verið hlýtt, og plönturnar eru í vexti ennþá.
| Vetur má koma núna. |
| Haustlegt á holtinu okkar, en reynitrén bera heilmikið af berjum. |
| Hlíðaramallinn bar heilmikið af berjum í sumar. Þau voru varla orðin fullþroskuð þegar þrestirnir kláruðu þau. Við fengum þó smakk, mjög sæt og góð ber. |
No comments:
Post a Comment