Monday, October 26, 2015

Mánudagur 26. október 2015

Fyrsti snjórinn kom sunnudaginn 25. október, daginn eftir  1. vetrardag. Það var talsverður snjór og frost var í dag, allt að -5°C í morgun.  Við fórum ekkert í Hafnargerði alla síðustu viku og ekkert um helgina þrátt fyrir gott veður á laugardag, en þá voru Lára og Ingibjörg hjá okkur og við höfðum nóg að gera heima.  Það er eitt og annað sem við ætluðum að klára fyrir veturinn, það eru alltaf nóg verkefni.
Ég tók svolítið til á Mógilsá á föstudaginn og svo tók ég aldin af villirósunum, þær vaxa mjög vel hjá okkur, en það gengur ekki eins vel að taka sumargræðlinga af þeim.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive