Tuesday, July 25, 2017

Þriðjudagur 25. júlí 2017

Hitabylgja í dag og í gær og spáð áfram næstu daga. 19-20°C og hæg S átt. Nokkra daga þar á undan var allhvöss A-átt, en sól og þurrt. Á akrinum þaut í öspunum, en grænmetið haggast ekki, nú er það í algjöru skjóli.
Halldór kláraði skjólgirðinguna, nú verður spennandi að sjá hvernig veturinn verður.
Í ræktuninni er lítið annað hægt að gera en að vökva og reyna að halda niðri grasi og illgresi.Vöxtur hefur ekki verið neitt gífurlegur í sumar, en nú er allt að fara af stað. Hér er grenið loksins að komast upp fyrir viðju og loðvíði. Fremst eru venusvagnar.

Tvær myndir teknar handan við lækinn, af gróðurhúsinu og nýju skjólgirðingunni og af grenilundinum.
Í dag tók ég svo græðlinga af geislasóp, tók líka græðlinga hjá Sædísi, þeir eru á þessari mynd.
Geislasópur, japanskvistur, rauðblaðarós, rós, sýrena.

Horft inn eftir gróðurhúsinu, lóbelía í fögrum litum. 



Við tókum jarðarber úr körmunum, nú eru engar litlar hendur að tína þau. Fengum fulla skál af gómsætum berjum og borðuðum með rjóma.



No comments:

Post a Comment

Blog Archive