Sunday, July 9, 2017

Sunnudagur 9. júlí 2017

Í gær rigndi, úrkoma sl. viku var 11 mm. Annars ágætt veður. Á föstudaginn gátum við tætt örlítið á neðri hluta akursins, þar sem eiga að vera fleiri jarðarber og líka rifsberjarunnar. Fyrstu jarðarberin komin, mjög bragðgóð, og þrösturinn mættur á svæðið. Ungarnir hafa yfirgefið hreiðrið, svo nú er óhætt að vera á vinnusvæðinu. Flutti út allar plöntur sem óhætt er að flytja út, verð sjálf í burtu í 10 daga, svo Halldór ætlar að vökva.
Skjólgirðingin er núna tilbúin "undir trévert", verkinu miðar ótrúlega hratt.




No comments:

Post a Comment

Blog Archive