Saturday, August 12, 2017

Laugardagur 12. ágúst 2017

Frábært veður, hæg áttleysa og 16°C samkvæmt mínum mælum.
Undanfarnar vikur hefur verið mjög gott veðurfar, hlýtt og mikil sól. það kom reyndar ekki dropi úr lofti í 3 vikur, en nú hefur aftur komið rigning annað slagið, 14 mm sl. viku.
Það hefur ekki verið mikið gróðursett þennan tíma. Í dag setti ég niður 1 stykki Pseudotsuga menziesii (Degli), 35 ljótar birkiplöntur frá trjáklúbbnum og 35 loðvíðigræðlinga frá því í vor. Birkið er blendingur íslenska birkisins og rauða afbrigðisins frá Finnlandi, þær plöntur sem eru grænar fóru til okkar í trjáklúbbnum. Þær eru ofvaxnar og hafa þornað og aðeins nokkur lauf á þeim. Þær fóru í NA hluta landsins, langt ofan við það svæði sem plantað var á fyrst. Þarna setti ég körfuvíði fyrir nokkrum árum og hluti þeirra er að koma til.
Á mánudaginn var setti ég 105 loðvíðigræðlinga uppi á sléttunni. Þar er loksins farið að sjá í trjáplöntur. 
Allt er með miklum blóma og trjásprettan mjög góð.
Uggi í baksýn

Seljan og félagar. Fremst á myndinni eru skógartoppar, græðlingana tók ég hjá Eddu. 

 Sólberin eiginlega þroskuð og rifsið á stutt eftir. Brokkólí vex og vex, nú þarf að uppskera af krafti næstu daga, áður en næsta holl verður tilbúið.  Tókum upp 2 körfur, brokkolísúpa, svo var soðið og fryst, ca 5 kg.
Jarðarberin hafa vaxið mjög vel, við höfum tekið upp heilan helling og enn eru að koma ber. Við höfum farið heim með fullar skálar og borðað með súkkulaði og rjóma og gefið barnabörnum að smakka og líka full box til að fara með heim. Stelpurnar eru mjög ánægðar og segja þetta betra en berin úr Costco.
Við keyptum okkur lítið sláttuorf, og nú er hægt að snyrta aðeins meðfram beðum, á vinnusvæði og umhverfis uppáhaldsplöntur.
Nýsleginn blettur við endann á skúrnum, gróskulegt elri aftast.

Þessi mynd á að sýna nýsleginn blett við bílastæðið.


Og ekki má gleyma því að gamli hvíti vinnuskúrinn var málaður í nýjum litum.
Halldór í viðeigandi galla.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive