Saturday, August 19, 2017

Laugardagur 19. ágúst 2017

Hiti og sólskin, en allhvass NA. Gróðursetti síðustu loðvíðigræðlingana á sléttunni, allt urðu tæplega 350 græðlingar úr bökkunum, einhverra hluta vegna var lifun ekki góð. Setti líka 96 brekkuvíði. Þeir lifðu miklu betur og voru fínir þó efniviðurinn væri mjög smár.
Við vorum svo að bera á skjólgirðinguna, þetta tekur allt sinn tíma. Svo var líka vökvað vel, bæði úti á akri, í körmum og kerjum og í gróðurhúsi, því allt hefur verið þurrt síðastliðna viku.
Matjurtirnar spretta mjög vel. Fyrri sáning af brokkolí er tilbúin og við erum næstum búin að taka allt upp. Ein 20 kg. komin í frysti, og brokkolí í matinn á hverjum degi. Uppskeran hefur held ég aldrei verið meiri, og seinni sáningin er um það bil að vera tilbúin. Svo eru berin dásamleg, rifsið er loksins að komast í gagnið, berin bæði stór og mikið af þeim, og sólberin klikka ekki, ótrúlega góð.
Það hefur verið gestkvæmt, Garðyrkjuklúbburinn (Sædís, Bubba, Steinka, Rannveig og Gúndi) kom í heimsókn á mánudaginn. Brynja var á sama tíma komin til að ná sér í brokkólí, hún tók fullan kassa af því, 2 stóra poka af gulrótum og heilmikið af rabbarbara. Stelpurnar tíndu jarðarber og Halldór grillaði pylsur og hamborgara. Það var svo mikið að gera að það gleymdist alveg að taka myndir.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive