Saturday, September 2, 2017

Laugardagur 2. september 2017

Nú er komin vætutíð, en ennþá er hlýtt. Í gær var vindur S10m og 14°C. Í dag er skýjað. Talsvert hefur ringt annað slagið og nú eru gróðursetningar í fullum gangi á milli þess sem ber og grænmeti er tekið upp.
Í körmunum er núna heilmikið af trjáplöntum sem annaðhvort þarf að potta upp eða gróðursetja sem allra fyrst. Það eru reynitré, margar tegundir, birki, þinir, furur, geislasópar, gullregn o.fl.
Við gróðursettum milli 30 og 40 reynitré upp með læknum og alla leið upp á hæðina, þangað fóru líka nokkur birki. Við kláruðum að gróðursetja grenið sem keypt var í vor í Þöll. Þá eru 200 sitkagreni komin, stór hluti í NA stykkið við akurinn og núna í stóran hálfhring SA við vinnusvæði og í heimagarðinn. Ég fór eina ferð upp á sléttuna með brekkuvíði, 60 stykki. Svo gróðursetti ég 4 þini í vesturstykkið, í skjóli við birki sem vex í skjóli við aspir, nú rekur þetta sig. Þessar plöntur í fötum og stórum pottum og það er ekkert grín að koma þessu niður í gegnum grasrótina.  Nyrst í stykkið hjálpaði Halldór mér að gróðursetja 7 reynitré og 8 ylli. Setti líka 8 logalauf og 1 Viburnum lanata í urð á þessum slóðum, þar setti ég furur í fyrra, þær dafna ágætlega.


Dalíurnar eru seint á ferð í ár, en núna gríðalega flottar.
Eldlliljurnar sem Lars gaf mér í fyrra eru á góðu róli á fyrsta ári. Tók 7 stk. (um það bil helminginn) og gróðursetti í garðinn í Austurholti. Hinar ætla ég að hafa í pottum úti í vetur og reyna að finna þeim góðan stað næsta sumar. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive