Allhvasst í dag og skýjað, nokkrir dropar féllu. Hiti nálægt 15°C. Það var kaldara í síðustu viku, en ennþá hefur ekki frosið. Við erum önnum kafin í haustverkunum, búin að tæta akurinn í síðasta sinn, okkur tekst að halda moldinni nokkurn veginn hreinni með þessu. Við merktum fyrir línu fyrir röð af rifsi á neðri hluta akursins og við höfum gróðursett helling, aðallega reynitré. Megnið fór í hlíðina NA við akurinn. NV við akurinn gróðursettum við í dag 21 plöntu; 9 þini, 1 hlyn (frá Danmörku), 5 koparreyni, 1 blátopp, 1 ask, 1 garðasýrenu (stóra, hún var í gróðurhúsinu í sumar og ég ætlaði að athuga hvort hún blómstraði næsta sumar), 1 silfurreyni, stóran, 2 svartelri. Þetta voru allt plöntur í stórum pottum sem var orðið brýnt að koma út. Þá setti ég 4 geislasópa í brekkuna handan við lækinn. Þar er núna gott skjól, venusvagninn dafnar vel og líka skógarkvisturinn (kóreukvisturinn).
Plöntuveggurinn N við vinnusvæðið er svaka flottur núna, trén standa auðvitað allt of þétt, en við njótum þess að sjá vegginn lokast.
 |
| Reynitrén með fullt af flottum berjum. |
Í síðustu viku gróðursettum við 2 rauðviði (risafurur). Fræið kom frá trjáklúbbnum 2013, svo þær eru bara 4 ára, en hæðin amk helmingur af þeim gamla sem hefur staðið á akrinum í nokkur ár. Þær hafa verið lengi í fötum og það var orðið mjög þröngt um þær. Við eigum núna skjólgöng á akrinum, nokkrar aspir urðu þar eftir og hafa myndað vegg. Svo er skjólið hinum megin við skurðinn og á skurðbakkanum er önnur röð af öspum að koma upp. Þarna á milli settum við fururnar og líka einn allstóran rauðhlyn. Hann kom upp af fræi af verðlaunatré í Borgarnesi og er sá eini sem varð með rauð blöð.
 |
| Tómatarnir að byrja að þroskast. Plönturnar eru nú ekki fallegar. |
|
|
|
|
|
Í gróðurhúsinu eru enn gulrætur, þær eru orðnar risastórar, og úti er líka hellingur af gulrótum.Tómataplönturnar eru hálfgerðar ófreskjur orðnar og fáeinir tómatmar eru orðnir gulir. Sætu kartöflurnar eiga erfitt uppdráttar í þessu kraðaki, en reyna þó að senda anga upp. Maísinn dó hins vegar snemma.
No comments:
Post a Comment