| 31. desember 2017 |
Lækurinn er ísi lagður og hefur flætt yfir bakka sína. Tréverkið er víða farið að láta á sjá, en er líklegast búið að gegna sínu hlutverki. Við tókum góðan göngutúr um svæðið, erum frekar bjartsýn.
Það hefur verið næstum samfellt frost frá því í nóvember, en ekki vond veður fyrir utan fyrsta storminn. Alls konar hjátrú boðar kaldan vetur en gott ár. Nýtt tungl um áramót, stillt og sólríkt ár framundan (frá spjalli Trjáklúbbsins).

No comments:
Post a Comment