Sæmilegt veður í dag, S5 og 1-2°C, él annað slagið.
Við fórum í Hafnargerði og kláruðum að setja net yfir húsið og festa það (byrjuðum í gær). Halldór dró netið upp á planið með bílnum og svo tókst okkur að skera af nákvæmlega þá stærð af neti sem við þurftum. Svo festum við endana með þungum staurum, dekkjum og stóru grjóti.
Svona lítur þetta út núna, tilbúið fyrir næstu sunnudagslægð. Það má mikið ganga á áður en þetta net fýkur af, og vonandi brotnar ekkert undir þessu, plastið ætti allavega ekki að hreyfast.


No comments:
Post a Comment