| Mið 27.02 kl. 14:00 | 7 m/s / 12 m/s | 6,1 °C | 2,9 °C | 72 % |
Ég fór og klippti fleiri græðlinga af alaskavíði og viðju í Þórðargötu og smávegis af hreggstaðavíði við íþróttavöllinn. Við gengum frá þessu í svarta plastpoka undir gámi, þar bíður þetta þar til frost er farið úr jörðu og við höfum tíma til að stinga græðlingunum.
Svo klipptum við græðlinga af alaskaösp 'Keisara', settum 60 stykki í fp 15 (4 bakka).
Það var sannarlega vor í lofti, milt og gott, stærstu skaflarnir eru samt ekki farnir. Páskaliljur eru aðeins farnir að gægjast upp úr jörðinni. Gróður virðist koma vel undan vetri, lítið er um frostlyftingu og litlar skemmdir af skafrenningi.
Sáðum gulrótum í 1 ker, án þess að stinga alveg upp. Það er svolítið frost í moldinni ennþá og einnig er spáð frosti eftir nokkra daga. Þetta er tilraun sem í versta falli mistekst. Nógur tími til að sá í fleiri ker.
Önnur tilraun: nokkur kartöflusmælki af 'Hárek' voru farin að spíra í búrinu. Setti 6 stykki í potta og geymi þá í upphitaða gáminum. Þar er líka alvöru útsæðið geymt og þar fer vel um það.
No comments:
Post a Comment