| Sun 24.02 kl. 16:00 | 17 m/s / 39 m/s | 6,9 °C | 2 °C | 67 % |
Síðast þegar við komum var allt á kafi í snjó, en núna var hiti og aðeins eftir snjór í sköflum. Myndirnar hér eru frá því fyrir viku síðan.
Við erum byrjuð að klippa græðlinga, klipptum bæði brekkuvíði og alaskavíði í Þórðargötu. Sérstaklega alaskavíðirinn er með flott græðlingaefni. Við erum búin að klippa til brekkuvíðinn, hann er tilbúinn til að stinga í grasið uppi á bakkanum, þegar frost fer úr jörðu. Afgangurinn fer í bakka.
Til stendur að gera það sama við alaskavíðinn.
Nú er sem sagt biðin eftir vorinu hafin.








No comments:
Post a Comment