Keypti nokkur dalíuhnýði 4. mars í Garðheimum.
Tegundir: Snowcountry, Senior's spirit, Topmix Pink, Red Pygmy Gallery Singer,
Þær fóru strax í potta, 3 fyrstnefndu komu hingað heim, Red Pygmy og Gallery Singer eru í gáminum þar sem hiti fer ekki niður fyrir frostmark.
Framhald, 10. október.
Þær dalíur sem fóru í potta inni í glugga spíruðu og urðu gisnar og ljótar. Þær voru klipptar niður og blómstruðu frekar seint.
Red Pygmy og Gallery Singer komu ekki upp úr pottunum fyrr en langt var liðið á vorið, en urðu mjög flottar og blómstruðu lengi, klippti blómin af í vikunni.
Top Mix byrjaði aftur að blómstra og Seniors spirit, kom með eitt blóm seint og um síðir, og marga knúppa þegar ég klippti hana niður.
Snowcountry var mjög þétt og stór, en náði ekki að blómstra.
Þær fóru allar út í ker í júní, og þá fyrst byrjuðu þær að vaxa af krafti. Nú eru þær komnar inn og til stendur að geyma þær í frauðplastkössum í svarta gámnum í vetur.
No comments:
Post a Comment