Sunday, March 10, 2019

Sunnudagur 10. mars 2019

Það var mjög kalt í morgun, - 6°kl. 8, þrátt fyrir sólskin. Það hlýnaði þegar leið á daginn og það var sól, logn og hiti síðdegis.
Sun 10.03
kl. 14:00
Suð-vestan 1 m/sm/s  /  2 m/s3,3 °C-0,8 °C39 %
Við kurluðum allar greinar úr garðinum, fórum svo með kurlarann í Hafnargerði og kurluðum allar greinar sem klipptar voru af rifsi, sólberjum, viðju og körfuvíði.
Þetta gekk eins og í sögu og við fengum nokkra bala af fallegu kurli.  Við notuðum kurlið í jarðvegsþekju, þurfum þó miklu meira, ef það á að hylja grasið.
Kurlið fór í jarðvegsþekju undir runnunum. 






No comments:

Post a Comment

Blog Archive