Sunday, August 4, 2019

Sunnudagur 4. ágúst 2019

Frábært veður í dag, sólarlítið, en logn og hlýtt.
Sun 04.08
kl. 15:00
Vest-norð-vestan 3 m/sm/s  /  6 m/s15,1 °C18,4 °C77 %
Síðustu vikur hafa verið alveg dásamlegar, hlýtt og logn flesta daga og oft mikið sólskin. Það var mikill gestagangur, Auður H. með sín 3 börn, Lára var hjá mér í 10 daga og Ingibjörg í nokkra daga og líka Áslaug og María Anna. Við höfum lítið gróðursett, aðallega vegna þurkka, en líka tímaskortur.
Uppskeran er komin vel á veg, miklu fyrr en áður. Jarðarberin voru tínd jafnóðum meðan krakkarnir voru hér, 2 dögum eftir að þau fóru tíndi ég heilan lítra í ísbox og við Halldór gæddum okkur á þeim 2 daga í röð. Sólber og rifsber eru um það bil að verða þroskuð og við tínum heilmikið af þeim á hverjum degi. 
Hnúðkál, kartöflur og gulrætur rifna út og við erum löngu byrjuð að borða að því. Svo er spergilkálið tilbúið, við erum búin að frysta vel yfir 10 kg. og borðum af því á hverjum degi. Hænurnar verpa mjög vel, 3-5 egg á dag. 
Við gróðursettum 10 sýrenur og 1 hlyn í hring í svæðið austan við akurinn. Þar eru bæði aspir og brekkuvíðir um það bil að mynda gott skjól. 

Hlynurinn "Dalaprinsinn" í miðju hringsins, umkringdur sýrenum. 

Þá gróðursetti ég 3 lambarunna neðan við þetta stykki og eitt silfurblað. Vökvaði vel, en þessar plöntur hafa þornað oft í pottunum og fer áreiðanlega betur um þær þarna.
Lambarunnar

Silfurblað

Rifsið 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive