Gróðurveður alla helgina, hlýtt, logn og skúrir, hellirigning í dag. Úrkoma síðastliðna viku 9 mm og við bættust 10 frá 2-3.
Við gróðursettum í dag 2 bakka af reynivið í lúpínubreiður á sléttunni og bættum við 4 bökkum af birki. Mikið af birki er að spíra upp af fræi sem við dreifðum þar fyrir nokkrum árum og vorum satt að segja búin að gefast upp á að bíða eftir. Lúpínan dreifir sér um svæðið, en líka íslenskur gróður, mest geldingahnappur og blóðberg, líka holurt og lambagras, en líka ljónslappi, gulmaðra í stórum breiðum og stöku maríustakkur. Krækiberin eru nærri tilbúin.
Við tjölduðum yfir hlíðaramalinn, en nú eru berin að þroskast og fuglarnir fá þau ekki öll. Sáningin frá því í fyrra rifnar út, einkum plönturnar sem fóru í potta.
No comments:
Post a Comment