Sunday, September 15, 2019

Sunnudagur 15. september 2019

Haustið er komið, miklar rigningar og nokkuð oft rok, þó hefur engin mjög djúp lægð farið yfir ennþá. Halldór er í fullu starfi að reisa hænsnakofann, núna í kapphlaupi við tímann.




Við flögguðum þegar risið var komið á, núna er búið að klæða þakið og N og S hliðarnar, gaflarnir eru næstir.


Við höfum lítið gróðursett, það er svo sem í lagi, það er er tilbúið má bíða til vorsins. Ég er búin að sá fræjum af hlíðaramal. Hélurifsið frá því seint í sumar er farið að spíra ágætlega. Á eftir að sá reynivið. Tók upp sitkaelri sem sáir sér vel við skúrana, pottaði í nærri 50 potta.  Nú hætti ég að sá því í bakka, það að fljótlegra að tína upp plönturnar.
Reyndar gróðursetti ég heila röð af hlíðaramal á neðri hluta akursins, við hliðina á rifsinu. Mér finnst þessi tegund mjög spennandi og hingað til hefur gengið mjög vel með þetta. Setti líka niður 2 kergi og 2 reyniblöðkur, nálægt sínum ættingjum, í brekkunni á móti vinnusvæðinu. Fór með stóran birkikvist sem var í keri, hann fór í NV stykkið, þar eru 4 minni kvistir, sem voru bara fallegir í sumar. Græðlingar af þessum stóra kvisti eru í bakka, koma ljómandi vel út.
Keypti haustlauka í Costco, 20 stóra graslauka, 12 rauða  (Allium purple sensation) og 6 hvíta (Allium mMount Everest).  Þeir sem ég keypti í fyrra (í Garðheimum) voru fallegir í vor, en ég efast um að þeir komi upp aftur, enda fölnaði laufið mjög snemma. 50 páskaliljur bíða.
Búin að klippa ofan af jarðarberjunum. Það kom ótrúlegt magn af renglum. Sædís tók 2 fulla bala og ég pottaði þá stærstu sem eftir voru, í nokkra bakka. Etv. gróðurset ég eitthvað af þessu í nýræktina suður af afleggjaranum, skammt frá malargryfjunni. Gömlu jarðarberin (blandaðar sortir) fengu að fjúka, en ég henti úr bökkunum í svæðið A við vinnusvæðið, vonandi tekst einhverjum að tóra þar. Þau gefa orðið lítið af berjum, svo Glíma verður nú allsráðandi. Reyndar fengu nokkrar plöntur séns, þær eru í pottum og líklega ekki mjög gamlar.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive