Thursday, September 26, 2019

Fimmtudagur 28. september 2019

Blíða í dag, eins og undanfarnar vikur.
Fim 26.09
kl. 16:00
Norð-norð-austan 5 m/sm/s  /  8 m/s16,3 °C16,9 °C68 %
Nú er ég hætt að setja niður haustlauka þetta árið. Alls fóru 110 páskaliljur, 3x20 gular (úr Blómavali), 25 gular og 25 tvílitar (frá Costco). Svo setti ég niður 75 minni páskaliljur (frá Bauhaus), þær eiga að verða 10-12 cm. Þær setti ég í skrautreitinn við veginn, þar gengur frekar illa að koma til plöntum, þó mjakast þær upp. Gulu páskaliljurnar fóru á hefðbundinn stað og þær tvílitu aðeins sunnar.
Svo bætti ég við upp á grín 10 Laucojum aestivum (klausturlilja) og 12 Iris, þær eiga að þola vel raka og fóru í svæðið handan við lækinn, við sjálfsáða alaskavíðinn. Áður komnar tveir litir af graslauk, eða Allium. Sjá 15. sept. 

Haustlitir. 
Hænsnahúsið mjakast upp, þetta eru mörg handtök. Gamla húsið er frekar dapurt, það lekur heilmikið inn þar.


 Blæöspin sem var eins og blýantur þegar henni var plantað í ruðninginn er sérlega fallg í ár, og hefur vaxið mjög vel.  Og haustlitirnir eru stórkostlegir núna, þar sem það kólnar hægt og rólega og laufið fýkur ekki jafnóðum.
Blæöspin gamla

No comments:

Post a Comment

Blog Archive