Saturday, February 15, 2020

Laugardagur 15. febrúar 2020

Hvasst, 23-30 m/sek, hiti nálægt frostmarki.
Í gær 14. febrúar gekk  önnur lægð yfir og öllu voldugri, vindhviður fóru í 71 m/sek undir Hafnarfjalli.  Við fréttum af foktjóni á Nýhöfn og vorum því svolítið stressuð þegar við fórum að skoða hjá okkur, en allt var þar með kyrrum kjörum og bæði gróðurhús og hænsnahús á sínum stað. Ein girðing hafði fokið niður, en ekki lent á trjánum svo við létum hana vera.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive