Saturday, February 1, 2020

Laugardagur 1. febrúar 2020

Logn, -5°C,  sólskin, snjór.
Það er greinilega tekið að birta. Janúar var mjög umhleypingasamur með stormi og látum, en annars sæmilegt veður. Hænurnar hafa verið alveg innilokaðar frá því fyrir jól. Við förum ca. vikulega og lítum eftir, það er alltaf nóg vatn, ófrosið á hellunni, og nóg bæði af varpkorni og fuglafóðri. Þær taka fuglafóðrið fram yfir varpkornið, enda verpa þær ekki neitt, en eru feitar og pattaralegar. Hitastigið í kofanum virðist fínt, stundum örlítið frost.
Myndin er tekin frá horninu á gróðurhúsinu, sú fyrir neðan með aðdrætti. 
Gróðurinn lítur vel út, það hafa ekki verið slíkir skaflar að þeir brjóti mikið, en auðvitað kemur það ekki í ljós fyrr en með vorinu.





No comments:

Post a Comment

Blog Archive