Þokkalegt veður í dag, en á föstudag var hörkufrost, og aftur er spáð frosti um næstu helgi.
Hænurnar eru ennþá lokaðar inni, það hefur ekki enn viðrað til útiveru, en til stendur að opna þegar tíðin skánar og loka ekki aftur.
Græðlingar af alaskavíði urðu ekki fleiri, því starfsmenn bæjarins voru búnir að klippa allt niður næst þegar ég kom.
Í dag pottaði ég nokkrar dalíur. Ein þeirra hafði myglað illa og er ónýt, sú dökka frá Sædísi var ennþá í pottinu, og ég skoðaði hana ekki frekar. Ég vökvaði þær og setti aftur inn í svarta gáminn, það er of seint að setja þær í gróðurhúsið.
Moldin er gaddfrosin í kerjunum, og engin leið að byrja að gróðursetja gulrætur eða setja mold í bakka fyrir græðlinga.
No comments:
Post a Comment