| Þri 07.04 kl. 13:00 | 7 m/s / 11 m/s | 1,2 °C | 0,3 °C | 83 % |
Gaf hænunum brauð og opnaði hjá þeim í svolitla stund, en þær sýndu því engan áhuga að fara út.
Það eru skaflar yfir öllu vinnusvæðinu og ekkert farið að gerast, en nú er von á hlýrra veðri á næstunni.
Það lítur út fyrir að risafuran hafi endanlega gefist upp þennan veturinn.
Fuglar: Stór hópur af þröstum var á vappi milli grenitrjánna og hafði varla tíma til að líta á okkur. Álftahjónin eru komin, þau flugu yfir á meðan við vorum á svæðinu. Held jafnvel að ég hafi heyrt í hrossagauk, en er þó ekki alveg viss.



No comments:
Post a Comment