Gott veður, hiti allt að 5° yfir daginn, en ennþá er næturfrost og snjór á jörðu.
Fyrsti vorboðinn, virginíuheggur byrjaður að spíra.
Búin að sá:
Fjaðuryllir, glitgreni, Acer triflorum.
Fyrsta sáning var 7. mars.
smáblaðareynir, rósareynir, Sorbus x thuringiaca Fastigiata,
Þá tók ég líka græðlinga af geislasóp, skaðar ekki að prófa vetrargræðlinga, úr því að allir sumargræðlingar deyja. Helmingur fór heim í glugga, hinn í gróðurhúsið.


No comments:
Post a Comment