Sunday, April 11, 2021

Sunnudagur 11. apríl 2021

 Ágætt veður í dag, sunnanátt og skýjað. Í gær var fínasta veður, logn og sólskin, 2°C hiti yfir daginn, en frost nóttina á undan og frost eiginlega alla síðustu viku. 

Við festum bílinn í fyrsta skipti í vetur á föstudaginn, en skaflinn var nánast horfinn í dag. 



Áfram var haldið að klippa græðlinga, myrtuvíðir, gljávíðir í gær, jörvavíðir í vikunni. Við erum búin að klippa mikið magn af aspargræðlingum. Setti niður nokkra 21. mars, en síðan hefur verið frost og í dag var ekki möguleiki að stinga neinu niður. 

  Hélurifsið er farið að spíra, ég var hrædd um að mýsnar hefðu klárað fræið, en sem betur fer var það ekki. Sáningin árinu áður eyðilagðist, nú þarf ég að passa þetta. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive