Fínasta veður í dag, sólskin, N6, 6°C. Allt að 15°C í skjóli.
Við klipptum græðlinga af jörvavíði 'Kólga' austan við akurinn (bakkanum þar) og bættum inn í röðina, þarna er að rísa skjólbelti utan við brettagirðinguna sem reist var á fyrstu árunum.
Við færðum 4 efnilegar furur í reitinn við veginn, nær klettinum. Þar vill helst ekkert vaxa, sjáum til hvernig þessum reiðir af. Þær urðu afgangs haustið 2019 og voru lengur í keri en til stóð, en þar uxu þær alveg svakalega í fyrra og eru komnar í vaxtargírinn aftur, vonandi hafa þær þessa flutninga af.
Svo fylgdu 5 stykki af óþekktum rifsplöntum, en þeim hafa þrestir sáð í kerið þar sem fururnar voru.

No comments:
Post a Comment