Milt og hlýtt veður í dag, SA6 og 13°C. Tilfinningin er að það sé kominn maí, stundum hefur verið kaldara um miðjan maí en núna. En við eigum eftir að sjá hversu lengi það endist. Gróðurinn tekur rólega við sér, laukar og lúpínur láta á sér kræla og víðirinn brumar. Vetrarblómið komið með blóm.
Mest er samt aðeins í viðbragðsstöðu ennþá. Því er þetta frábær tími til að klippa og stinga græðlingum. Við erum búin að stinga um 900 græðlingum af ösp og 500 af alaskavíði, sá var klipttur á Þórðargötu í febrúar.
Öspin fór í svæðið G-20, en alaskavíðirinn í Bakkann.
Þetta eru elstu aspirnar, við byrjuðum á 100 stykkjum árið 2012, eða fyrir 9 árum. Síðan höfum við sett eitthvað flest árin, mest aspir, en líka viðju og brekkuvíði, alaskavíði, greni, reynitré (úr bökkum) og minna af birki. Það sést lítið í þetta á sumrin þegar grasið er í mestum vexti, en það kom okkur ánægjulega á óvart hvað mikið er lifandi og í raun er þetta belti orðið allbreitt. Núna fóru sem sagt 600 græðlingar af alaskavíði inn á milli aspanna.
Þar er komið mikið magn af græðlingum sem við höfum stungið þar niður undanfarin ár.






No comments:
Post a Comment