Tuesday, July 6, 2021

Þriðjudagur 6. júlí 2021


 Skýjað, SV7 og 15°C.  Það hefur verið brakandi hiti undanfarna daga, en stundum mistur í lofti, sem sagt er vera bland af gosmengun og þoku. 

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á vegum Rakelar og Helga, en þau ætla að gera upp 3 gáma og völdu þeim stað undir klettinum við bílastæðið. Þar þurfti að moka upp mikið magn jarðvegs til þess að komast á fast, síðan var fyllt upp með möl og loks gengið frá svæðinu. 


Hér er byrjað að moka möl ofan í grunninn. 

Það hefur ekki viðrað vel til gróðursetninga, en við höfum verið að snurfusa í kringum okkur. 

Hér er búið að grafa og slétta, næst á að færa gámana. Myndin er tekin frá gróðurhúsinu. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive