Wednesday, July 7, 2021

Miðvikudagur 7. júlí 2021

 Fínt veður í dag, sól með köflum, S4 og hiti allt að 20°C þegar sólin skein. Ekki hefur rignt í eina 10 daga, svo við gróðursetjum lítið. Setti samt niður blæaspir sem voru í kassa, það reyndust 3 í góðri sprettu. Setti líka eitt knippi, rótarskot af gráelri frá Kirkjubæjarklaustri. Þetta fór í spildu A við akurinn, þar vantaði einmitt eitthvað sérstakt. Bætti einu reynitré við og í haust (eða næsta vor) fá hindberin að spreyta sig þar. Þau vaxa alls ekki syðst í landinu. 

Í gær var vinnufundur á Mógilsá hjá Trjáklúbbnum. Ég fór heim með 4 eikur (Quercus robur), nokkra garðahlyni (Acer pseudoplatanus), kanadalífviði  (Thuja occidentalis) og snæbjörk (Betula utilis).

Kanadalífviðurinn fór í 2 fp35 bakka, eikurnar í djúpa potta og snæbjörk og garðahlynir í litla potta. Svo nældi ég í 2 burkna sem fóru beint niður í norðurhluta ruðningsins. Þar er skjól og skuggi, ætti að vera góð aðstaða.  

Það er ekki mikið að frétta af iðnaðarhampinum sem ég sáði fyrir í vor, en 4 stærstu plönturnar fóru út á akur í gær. Ein fór í ker í gróðurhúsinu, hinar eru enn í pottum. 

Fallegu hengin sem Vala Smáradóttir hnýtti. lóbelía og fuksia. 

Rauð sýrena sem er að byrja að blómstra í einu kerinu. Græðlingaefni. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive