Fínt veður 16°C og logn, smávegis þoka. Það hefur verið mjög hlýtt í marga daga og þurrt síðustu daga. Gróðurinn vex af kappi, virðist hafa beðið eftir þessum hlýindum. Grænmetið er lengra komið nú en oft áður á þessum tíma, þó aldrei hafi það farið svona sent út.
Mynd sem Rakel birti á Facebook í dag.
Við kláruðum í dag að gróðursetja sitkagrenið sem við keyptum í Kjarri í maí, alls 10xfp40. Við erum líka búin að fara með allt sem á að fara á Miðhraun í sumar, greni, aspir, reyni, birki og víði.

Tók græðlinga í dag og í gær, af sýrenum, blátoppi og glæsitoppi, birkikvisti, blóðrifsi og geislasóp. Stakk þeim í litla potta með hreinum vikri, vökvaði vel og kom þeim fyrir í Ikea plastkassa. Halldór boraði 6 lítil göt í hvert lok. Þarna eiga þeir að pluma sig. (Líta ótrúlega vel út 14. ágúst.) 14. ágúst tók ég fleiri græðlinga af glæsitoppi, líka af purpuratoppi og surtartoppi og kom þeim líka fyrir í plastkössum. Tók græðlinga af öllum þessum tegundum í fyrra, + 1 sýrena 'Júlía', hún var sú eina sem lifði. Henni var stungið í hreinan vikur, öllum hinum í blöndu af vikri og mold, og allt varið með glæru plasti.
Hitti Barböru um daginn og hún gaf mér fræplöntur af blágreni, af tré úr skógrækt Garðabæjar. Leyfi þeim að vera í friði í bakkanum þar til næsta vor. Hún sagðist hafa tekið græðlilnga af sýrenum í mars, þarf að prófa það.


No comments:
Post a Comment