Saturday, October 16, 2021

Laugardagur 16. september 2021

 Kalt veður, sólarlaust, en NA kaldi og 3°C. 

Margt var brallað undanfarnar vikur, en við höfum ekki náð neinum löngum vinnudögum. 

Setti niður nærri 200 haustlauka, túlipana, páskaliljur og margar tegundir af "graslauk". 

Þessar tegundir voru settar niður. 

Ný akbraut, hér þarf að gróðursetja eitthvað skemmtilegt. 


Svo urðu undur og stórmerki: Við fengum veg yfir skurðinn og yfir á "sléttuna". Vígði veginn í dag og setti niður 20 sitkaelri.  Næsti áfangi verður að merkja vegslóða í hring um sléttuna. Þá á að verða auðveldara að fara þangað með  bæði græðlinga að vori og plöntur og bakka yfir sumarið. Það hefur hingað til verið stór þröskuldur að bera þarf plöntur, áburð og verkfæri langa leið. 

Við höfum sett heilan helling af sitkaelri vítt og breitt um landið. Halldór hefur unnið mest austan og norðan við vinnusvæðið, í eyður í landinu, ég hef nokkrum sinnum farið upp á sléttuna. Allar plönturnar tókum við upp við endann á skúrnum, en þar er "limgerði" úr sitkaelri sem sáir sér af miklum dugnaði í mölina í kring. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive