Fínt veður í dag, sólarlaust, en logn og 8°C.
Fræsöfnun:
- Rauðsmári og sitkaelri í Hafnargerði.
- Bergreynir, Hafnargerði.
- Bergfura? Útafliggjandi fura í Hafnargerði.
- Stafafurukönglar í Borgarnesi og skógræktinni Akranesi.
- Purpurahlynur við Borgarbraut. (Ekki mikið magn).
- Kasmírreynir úr Dalseli.
- Reynir "Joseph Rock" í Hafnargerði, frá Jóni Guðmunds á Akranesi.
- Gullregn - frá Sólveigu í Lambhaga.
- Sitkagreni úr Borgarnesi.
Sáði purpurahlyni og kasmírreyni. Í síðustu viku sáði ég slatta af bergreyni, fræ úr Hafnargerði og fræ af Joseph Rock, það voru 10 ber á plöntunni sem ég keypti hjá Jóni í sumar.
Þá fór ég líka með reyniber upp á sléttu. Þau tíndi ég af blaðfallegum reyni sem vex hér nálægt. Svo sáði ég heilmiklu af sitkagreni, það fræ kom frá Miðhrauni. Hluti af því varð eftir til að sá í bakka. Svo tók ég birkifræ síðan í fyrra og sáði, skildi aðeins eftir það sem ég tók af "eðaltrjám" í fyrra og gaf góða raun i sumar.
það hafa komið nokkrir frábærir dagar í vikunni, einn slíkan komu samstarfskonur mínar gangandi, Þóra, Veronika og Helga.

No comments:
Post a Comment